Ákvörðunarfælni sjálfstæðismanna

Í mörg, mörg ár hafa þingmenn talað um að fara í stjórnarskrárbreytingar, þessi umræða er ekki ný, langt í frá. Nú er lag að demba sér í verkið og setja af stað alvöru stjórnarskráar-nefnd -þing  sem hefur ákveðinn tíma til að ljúka þessu máli, tólf mánuðir ættu að duga. Það er ótrúlegt hvað þetta getur þvælst fyrir sjálfstæðismönnum, ákvörðunarfælni þeirra á sér engin takmörk. 


mbl.is Bullandi ágreiningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Menn sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn  virðist ekki bara elska Sjálfstæðisflokkinn heldur dýrka hann líka, nú kemur Viðskiptaráð og segir að þjóð geti ekki átt eign og þar með sé ekki hægt að setja í stjórnarskrá, að þjóðin eigi auðlindirnar. Hvað, út af hverju er þá þessi andstaða við lögin? Á ekki þjóðin Þingvelli, eða á kannski Sjálfstæðisflokkurinn líka Þingvelli?

Því í fjandanum kýs fólk flokk sem vill ekki setja í stjórnarskrá að þjóðin eigi auðlindirnar? Vill fólk virkilega að auðlindirnar séu gefnar einhverjum útvöldum einstaklingum til að græða á þeim? Mikið er þetta klikkað eitthvað. Með réttu ætti þessi blessaði frjálshyggjuflokkur að þurkast út. Núna liggur fyrir að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur vilja auka við lýðræði til almennings, allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur vilja að auðlindir þjóðarinnar verði eign almennings og að þær verði ekki seldar eða gefnar einhverjum vinum Sjálfstæðisflokksins (það vill Sjálfstæðiflokkurinn ekki) Út úr þessu kemur bara eitt, og það er að Sjálfstæðisflokkurinn er frjálshyggjuflokkur sem getur ekki unt fólkinu í landinu að eiga NEITT! og Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki sætt sig við að geta ekki gefið auðlindir þjóðarinnar til valinna vina sinna.

Hvers vegna kýs þriðjungur þjóðarinnar þennan Sjálfstæðisflokk? Kýst þú Sjálfstæðisflokkinn? Villt þú ekki að auðlindirnar verði þjóðareign, villt þú ekki að t.d. olíuauðlindir á Drekasvæðinu og hagnaður af því svæði verði þjóðareign? Eða villtu að Sjálfstæðisflokkurinn geti í framtíðinni einkavinavætt olíuauðlindir þjóðarinnar þannig að einhverjir vinir Sjálfstæðisflokksins geti grætt skriljónir á olíunni og hennt einhverjum 10% fjármagnstekjuskatti í andlitið á okkur þjóðinni? Kýst þú Sjálfstæðisflokkinn? Finnst þér gaman að skjóta þig í fæturnar? Eða elskar þú kannski Sjálfstæðisflokkinn meira en þjóð þína? Hugsaðu áður en þú kýst!

Valsól (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 21:10

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Minni á orð Ögmundar Jónassonar hér (sem virðist hafa gleymt þeim sjálfur):

Það eru umdeildu málin sem kalla á athygli. Langar umræður á Alþingi eru einmitt oftar en ekki tilraun til að ná eyrum þjóðarinnar í málum sem stjórnarandstaðan telur skaðleg og brjóta í berhögg við þjóðarvilja.

Annað veifið heyrast þær raddir að banna eigi þingmönnum að hafa langt mál um slík mál. Það væri mikið óráð. Eða vilja menn virkilega að kæfa stjórnmálaumræðu í landinu? Þöggun á þingi myndi vera skref í þá átt.

Geir Ágústsson, 1.4.2009 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband