24.3.2009 | 20:32
Vilhjálmur og siðleysi
Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnullífsins gerðu með sér samninga til að atvinnulífið gæti plumað sig í þessu skelfilega efnahagsástandi sem nú er. Græðgi eignamanna að heimta arð út úr fyrirtækjum á sama tíma og launafólk tók á sig launalækkanir til að bjarga fyrirtækjum frá fjárhagserfiðleikum, er engan vegin í takt við það það ástand sem nú er.
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri var svo klaufalegur að hneykslast á orðum forsætisráðherra um siðleysi stjórnenda HB Granda. Þar með setti hann samningana sem ASÍ og SA höfðu gert með sér í uppnám. Hann ýtti undir þann óróa sem Grandamenn höfðu skapað í þjóðfélaginu.
Samningar hanga á bláþræði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þeir hafa oft verið ótrúlega taktlausir þessir svokölluðu talsmenn atvinnurekenda i gegnum tíðina og tónn Vilhjálms er æði falskur.
Sigrún Jónsdóttir, 24.3.2009 kl. 20:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.