Slæmur afmælisdagur

Konan á afmæli í dag, fyrsta apríl. Hún bakaði tvær tertur og fór með þær í vinnuna í morgun. Vinnustaðurinn er bæjarskrifstofurnar sem eru á annari og þriðju hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Þegar nálgaðist kaffitímann, hringdi hún á þriðju hæðina og sagði að það væru tertur í boði í kaffistofunni. Fyrsti apríl og enginn á þriðju hæðinni trúði henni. Erfitt að eiga afmæli á þessum degi.
mbl.is Einkennilegar fréttir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með frúna

Sigrún Jónsdóttir, 1.4.2009 kl. 22:26

2 identicon

Viltu nú kyssa hana frá okkur hér á Selfossi!

alda (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 22:58

3 Smámynd: Rögnvaldur Þór Óskarsson

Ég skila þessu með ánægju.

Rögnvaldur Þór Óskarsson, 2.4.2009 kl. 09:50

4 Smámynd: Hjördís Þráinsdóttir

Það hljóta nú einhverjir að hafa trúað henni, því loksins þegar ég ákvað að athuga hvort þetta væri í raun aprílgabb, þá var nær allt búið =oP

Hjördís Þráinsdóttir, 2.4.2009 kl. 11:45

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Stundum er bara gaman að hlaupa apríl og taka sénsinn. Afmæliskveðjur vestur

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.4.2009 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband